Til sölu frábær Head dömuskíði. Head everythang árgerð 2008!

Head everythang skíði ásamt Head surethang 9RF bindingum. Skíðin eru nýleg (2008 árgerð), 156cm á lengd. Skíðin eru með intellegence flögu og liquidmetal sem sér til þess að skíðin verða stífari í hörðu færi og verða þar af leiðandi stabílli. Skíðin eru í mjög góðu ástandi og hafa t.d. farið í vax reglulega.
Bindingarnar eru með snúningstá og það er mjög auðvelt að breyta stærð á bindingunum (þarf ekki að bora) og hægt að stilla bindingar eftir færi. Skíðin eru nývöxuð og tilbúin í brekkurnar!

Verð fyrir skíði og bindingar: 60.000 kr.
Erna s. 695-0108
Reykjavík