Silverstone SG01 Evolution Fannst seinasta mynd vera alveg hrikaleg( þótt að umræddur kassi sé sæmilega útlítandi og á ágætu verði þá ákvað ég að senda inn nýja mynd með smá umsögn)

Í byrjun sumars ákvað ég að uppfæra vélina mína og umræddur kassi varð fyrir valinu.
Kassinn hýsir eftirfarandi vélbúnað:
Amd Opteron 170
Dfi RS482 INFINITY
2x 1gb cl2 g.skill
seagate 7200.9 160gb
Creative x-fi fps
Ati x1800xt

Það eina sem að ég hef getað fundið að kassanum eftir að hafa notað hann í tæpa fjóra mánuði er að framaná kassanum er tengikví sem að er samsett úr akrýl og samræmist ekki alveg þeim gæðastöðlum sem að silverstone setja sér varðandi aðra þætti í SG01 kassanum.

Helstu tölur varðandi kassann

Efni:Ál, akrýl tengikví, 1.5mm álskel
Litir: Svartur/Silfur
Móðurborð: Micro Atx
Drifstæði:
5.25” x 2 útvær
3.5” x 2 innvær

Kæling:
Bakhlið: 1 x 80mm útblástursvifta auk stæðis fyrir öxulviftu
Hliðar: 1 x 80mm innblástursvifta
Toppur: stæði fyrir 80mm viftu

Stækkunarraufar: 4

Tengikví að framan

USB2.0 x 4
1394 Firewire x 1
Headphone jack x 1
Mic x 1

Aflgjafi: Staðlað ps2 atx[b/]
Þyngd: 3kg
Stærðir: 263 mm (B) x 216 mm (H) x 393 mm (D)


Cooling System Rear

1 x 80mm exhaust fan, 2050rpm, 21dBA
Optional cross-flow fan
Sides 1 x 80mm intake fan 2050rpm, 21dBA
Top 1 x 80mm fan slot
Expansion Slot
4
Front I/O Port

USB2.0 port x 4
1394 Firewire x 1
Earphone jack x 1
MIC x 1
Power Supply Optional standard PS2 (ATX)
Net Weight
3 kg
Dimension 263 mm (W) x 216 mm (H) x 393 mm (D)

Kassinn sjálfur er virkilega kaldur og stuðlar margt þar að einsog t.d. að hdd liggja þvert í kassanum og vifta blæs stöðugt frá þeim, skjákortið dregur kalt loft frá innblástursviftu og raufum á sem að liggja eftir kassanum endilöngum þannig að stærð x1800xt kortisins nær að skipta kassanum nánast í tvennt og auðveldar þarmeð kælingu á opteron örgjörvanum sem að situr undir north-q blómi sem að blæs út til hliðar auk þess að aflgjafinn dregur loft til sín úr kassanum og blæs í gegnum sig.

Kassinn er einungis í meðallagi hljóðlátur og hitinn sömuleiðis enn þegar á það er litið að þetta er kassi sem að leikandi myndi rúma sli/crossfire setup ef að móðurborðsframleiðendur myndu framleiða m-atx borð með þeim möguleikum auk þess að rúma aflgjafa í fullri stærð þá er þessi kassi draumur allra sem að stunda uppfærslur grimmt og vilja ekki þurfa að sitja upp með t.d. shuttle sem að er einungis með aflgjafa sem að passar í shuttle vélar auk þess að geta bara tekið við ákveðnum vélbúnaði þannig að með hverri uppfærslu úr viðmótum sem að hafa verið tíðar seinustu ár (s754,939,am2 t.d. og agp og pci-ex) að þá geturðu haldið kassanum,aflgjafanum og látið annað flakka.

Heimasíða framleiðenda

http://www.silverstonetek.com/products-sg01Evolution.htm
We are the hollow men