Fyrst vil ég bara benda á það að ég veit ekki hvort að þessi korkur eigi að fara hérna en þar sem ég fékk góða hjálp hérna fyrir nokkrum misserum hef ég trú á því að senda inn vandamálið mitt hér.

Málið er það að ég var að setja upp W2K og nú get ég hvorki spilað Mafia né GTA3 sem þó eiga báðir að supporta Windows 2000. Þeir virkuðu báðir hjá mér þegar ég var með Win Me (en það var sumt annað sem virkaði ekki þar og því skipti ég). Anyways tölvan sem ég er með er með 1200 Mhz Amd örra, 256 ddr minni, geforce 2 mx400 skjákort, 30gb harðan disk með fullt af lausu plássi svo að ég uppfylli allar kröfur um leikinn.

Er einhver með töfralausn?