Komið þið sæl,

Ég streitist á móti að kaupa digital myndavél enda á ég ágætis
35 mm vél.

Ég lét Hans Petersen framkalla filmu og setja á CD. Gæðin voru
rýr, upplausnin aðeins 1500x1024 sem gerir 35 mm filmu engann
veginn góð skil mér vitanlega, upplausnin mætti vera 2000 x 3000.

Verðið var næstum 2.000 kr en ég sé að erlendis eru menn að fá
þetta gert fyrir 5-6$ eða 500 kr.

Er einhver aðili á Íslandi sem gerir þetta ódýrt og vel ?

Kveðja, Kári