Sko, ég er alltaf að leita að hinu og þessu, á einn svona disk fyrir (40GB) og var að spá í að fá mér annan. Það virðist enginn selja þá, Þór var með þetta í vetur en á ekki neitt í augnablikinu. Ég fann eina síðu sem selur allskonar hluti á mjög góðu verði (www.overclockers.co.uk) sem segja á síðunni senda til USA/Canada/Europe og ég veit ekki hvað, nema til Íslands!
Ísland var í Evrópu síðast þegar ég vissi, hehe. En það er bara gjörsamlega vonlaust að finna svona síður sem senda hingað og eru með verð sem vit er í, veit einhver um hardware síður sem selja til Íslands?

Takk