Ég var að velta því fyrir mér hvort að einhver kynni hugsanlega að leysa vandamálið mitt með þessa mús.

Vandamálið lýsir sér þannig að þegar ég er að spila einhvern tölvuleik t.d. Quake 3 en hreyfi svo ekki músina í smá tíma þá frýs hún og fæst ekkert til að snúa aftur til lífs nema að ég taki hana úr sambandi og stingi aftur í samband.

Ég er með Abit TH7-II Raid móðurborð (i850) og er að keyra Windows 2000 með útgáfu 9.6 af MouseWare (prófaði líka 9.42, breytti engu).

Ég yrði mjög þakklátur ef einhver gæti hjálpað með mér þetta vandamál því þetta er nokkuð pirrandi :)<br><br>“Yeah, well, you know, that's just like… your opinion, man.”