Sælir
Ég var að uppfæra stýrikerfið hjá mér í win 2000 pro og allt virkar fínt nema að nero-inn minn vill ekki finna skrifarann. var búinn að nota sömu útgáfu af nero með þessum skrifara þegar ég var með win 98 án nokkurra vandræða. Ég er með nýjasta driverinn fyrir skrafarann og allt, alveg hættur að botna í þessu. Veit einhver hvað í ósköpunum gæti verið að?

P.S. Jú ég er búinn að setja Service Pack 2 inn.

kv
Andri Mar Jónsson