Ég er með slatta af diskum í vélinni minni og tveir þeir nýjustu eru eitthvað farnir að haga sér einkennilega
80gb maxtor og 60gb maxtor

Það sem gerist er að stundum hættir annar þeirra bara að virka allt í einu, get ekki tengst honum. Með því að restarta þá virkar allt aftur.

Það gæti einnig verið abit hotrod 100 controler sem þeir eru á, því að þeir eru það eina sem er tengt þeim controler og ég á í engu svona vandræðum með hina diskana sem eru mun eldri.

Hvað get ég gert til að komast að því hvað er að?
_______________________