Góðan daginn!

Ég fékk nýlega nýtt skjákort (keypt notað), Ati MSI 4870 1GB. Alveg æðislegt kort í alla staði og mikið stökk frá 8800 gts sli kortunum sem ég var með á undan.

Hinsvegar þá líst mér betur á Nvidia og þar sem ég er með móðurborð sem styður SLI en ekki Crossfire þá langar mig að skipta á kortinu og öðru Nvidia korti, aðalega svo ég geti einmitt nýtt mér SLI möguleikann í framtíðinni.

Það sem ég væri mest til í er 275 kort og ég myndi þá borga eitthvað á milli en annars megið þið koma með tilboð. Athugið þó að mikið lakara kort kemur ekki til greina, t.d. langar mig lítið sem ekkert í 250 kort.


Samkvæmt fyrri eiganda þá var það verslað í @tt fyrir 9 mánuðum en ábyrgðarnóta fylgir því miður ekki með (ég veit ekki alveg hvernig systemið er hjá þeim með ábyrgð). En kortið virkar samt sem áður fullkomlega.

Kortið lítur svona út:
http://www.buynet.co.za/catalog/images/MSI%20R4870


Ég gef mér leyfi til að hætta við sölu/skipti ef mér sýnist.

Bætt við 6. maí 2010 - 00:37
Athugið, kemur vel til greina að skipta á 250 + cash!