Ég sá hérna fyrir neðan könnun á hvort eigi að segja Tölva eða Talva. Ég hef alltaf vanið mig á Tölva (sbr. mjólkurfernu upplýsingar) en íslenskukennarinn minn í fyrra er mikil tölvuáhugamanneskja og hringdi uppí háskóla til að spyrjast fyrir um þetta. Þar var henni sagt að þeu væru jafn rétt og að talva hefði komið inn vegna málvenju.
Mér finnst þetta reyndar ekki góð þróun, að taka inn svona orð sem eru “vitlaus” bara vegna þess að margir eru vitlausir.. en það er bara mín skoðun :)
___________________________________________________