Ég hef verið að reyna að setja saman tölvu, keypti mér hluti útí danmörku, sem er b.t.w. miklu ódýrara!, setti þetta saman, og allt í góðu, ætlaði að fara setja stýrikerfi á harða diskinn, en hún kemst ekki lengra en í Bios ið, finnur harða diskinn, geisladrifið, svo fer bara allt að pípa, stanslaust. Er búinn að prufa að skipta um ram en það virkaði ekki, á ekki annan örgjörfa þ.a. hef ekki getað prufað það. Veit einhver hvað gæti verið að? Keypti mér Asus móðurborð og skjákort, ibm hd. 512 ram, svo skrifara!! Ég er að verða vitlaus útaf þessu, þoli ekki þegar svona virkar ekki hjá mér! Er ekki þolinmóðasti maður á jarðríki!!
Það væri ágætt að fá einhverjar ábendingar frá Huga lesendum!