Ég var svona að vonast eftir því að það væri einhver góðhjartaður einstaklingur hérna sem gæti raðað saman einhverjum góðum leikjaturn fyrir mig.

Ég spila mest flight sim leiki en hef gaman að öllu, það erfiðasta sem þessi tölva þyrfti að takast á við væri flight sim x, þannig að það þurfa að vera smá kröfur í þessu.

En það væri snilld ef einhver gæti raðað góðum turn saman fyrir mig með verðið kannski í kringum 100 þús, ekki mikið yfir það.

Fyrirfram þakkir.