Mig vantar skjá sem er flatur. Þá meina ég ekki endilega flatan LCD skjá, bara að skjárinn sjálfur sé flatur, en ekki kúptur eins og margir crt skjáir eru. Má vera hlunkur með slappri upplausn og jafnvel ekki í fullu lagi, bara ef:
- hann nær 640x480 upplausn
- er hægt að tengja hann án vandræða
- helst í lit
- helst ekki með myntruflunum, þótt vægar truflanir slyppu kannski
- eins og kom fram áður, er flatur

það sem mér er alveg sama um er:

- dauðir pixlar
- litir í rugli
- orðinn eitthvað slappur, daufur eða hvað sem er
- útlitsgallar

Hann þarf helst að vera ódýr, því að það sem ég er að hugsa er ekki beint týpísk notkun, og því ekki þörf á einhverju fansí.

Hafið samband hér eða bara í emli: 7oi@7oi.org

Bætt við 15. mars 2009 - 22:41
Já, og það þarf ekki heldur að vera fótur undir honum. Hann fer beint á bakið…