Mig er farið að vanta almennilega vél í staðinn fyrir lappann minn sem er að verða 5-6 ára gamall. Vantar ekki skjá, mús eða lyklaborð eða nein önnur jaðartæki, bara turn með öllu innvolsi.

Vélin þarf að vera sæmilega nýleg, helst AM2 X2 örgjörvi eða Intel Core 2 Duo. Helst 2gb í minni. Þarf alls ekkert leikjaskjákort, allt í líkingu við NVidia 8xxx línuna eða ATI3xxx er mikið meira en nóg fyrir mig.

Er tilbúinn til að borga 50-60þús kall fyrir réttu vélina.

Ef þú ert með vél sem passar við þessa lýsingu og er tilbúin(n) til að selja, hafðu þá samband hér í PM eða á haukurhaf@gmail.com