VIA ProSavageDDR KM266 móðurborðið er nýkomið út. Það er hægt að nota AMD Athlon og AMD Duron örgjörva við það. Þetta er alveg magnað móðurborð sem er hægt að setja í 4 GB af annaðhvort SDRAM minni eða DDR minni í það. Það eru einnig sex usb tengi á því þannig að þetta er alvöru móðurborð með öllu því nýjasta. Móðurborðið keyrir á 266 mhz frontside bus og er þarf af leiðandi alveg rosalega öflugt. Það hefur innbyggt 10/100 mb netkort og skjákort. Þetta er rétti gripurinn fyrir alla þá sem eru með amd athlon xp örgjörva. Hver vildi ekki vera með þetta móðurborð með 4 gb af ddr minni og athlon xp 2000+ það hljómar alls ekki slæmt og ætti að tryggja góða frammistöðu hjá vélinni hvað svo sem annað væri í boði með henni. Það besta kostar náttúrlega alltaf smá pening en þetta er ekki svo dýrt móðurborð.