Daginn hugarar

Ég er búinn að vera í allan dag að reyna að flash-a bíósnum í
tölvunni:
Mobo: Aopen AK77 pro (gömul tölva, ég veit)

Byrjaði allt saman á því að Ég sá Unknown Flash Type fyrir mörgum
árum síðan. Svo hefur allt verið að klikka í tölvunni. Hún startar
sér stundum ekki neitt og slekkur stundum á sér (blár skjár fyrst, svo slökknar).

Ég er búinn að fara á spjallborð víðsvegar um heiminn og lesa
mig til um hitt og þetta þar. Er búinn að komast að því að
þetta eru ekki vinnsluminnin sem eru að bögga mig.
Lærði þar að nota AwardBIOS Flash Utility V8.83.
En vandamálið er eins og áður sagði: Unknown Flash Type !

Ég hef reynd að force flash-a en ekkert gerist. Er með réttan
BIOS og allt hvað eina. Mig langaði bara að vita hvort eitthver
geti bennt mér á leið framhjá þessu Unknown Flash Type.

Hvernig virkar Uniflash, BIOSman og allir þessir gaurar?
Er hægt að fara framhjá þessu stuffi öllu saman?

Fyrirfram þakkir
Árni Gei
Http://www.myspace.com/genrearnigeir