Ég ætla að kaupa mér samsettan stakan turn og með allar þessar nýju tölvubúðir veit ég ekki hvert ég á að snúa mér.

Ég var að pæla hvort þið getið mælt með einhverjum tölvubúðum varðandi þjónustu, verð og það sem skiptir mig mest áreiðanleika. Ég er dálítið tortryggin því að áður en ég setti núverandi tölvuna mína saman keypti ég tilbúna tölvu í bt og hún var öll í fucki. Ég meira segja fékk ekki suma hluti sem voru auglýstir í henni sem ég borgaði fyrir. Aðrir hlutir voru bilaðir og þetta var á allan hátt mjög leiðinleg reynsla. Þetta leiddi líka til þess að ég sneyði alveg fram hjá bt í dag. Takk fyrir hjálpina og farsælt komandi ár:).