Þannig er mál með vexti að ég var að setja nyjann harðan disk í tölvu og setti upp windows á hann. En þegar ég tengdi aftur geymslu disk sem hafði verið ótengdur í gegnum þetta ferli þá kemur hann upp sem “Unallocated” s.s. virðist vera óformattaður.

Veit einhver hvað gæti hafa gerst þarna og hvort einhver leið sé að gögnunum á sem voru á disknum (persónulegar ljósmyndir og video sem hafa tilfinningarlegt gildi)

PS : búinn að tengja hann við aðra tölvu og sama upp i á teningnum þar.

með fyrirfram þökk fyrir aðstoð/hugmyndir.
Alien8