Málið er að ég fékk flakkarann hans pabba lánaðan, til að færa dót á milli tölvunnar minnar og tölvunnar hjá vini mínum… og svo allt í lagi með það… þegar ég var búinn að því að þá ætlaði ég að tengja hann aftur við tölvuna mína, og þá er eins og hann detecti ekki diskinn:S eða sko hann sýnir alveg að hann tengist… bara máli er að þegar ég fer í My Computer, að þá kemur bara Local Disk(G:) og ekkert inná honum..
ef ég hægri klikka á hann og ýti á properties, þá stendur bara
Used Space: 0 bytes
Free Space: 0 bytes
og inná þessum flakkara voru videomyndir og fjölskyldumyndir seinustu 3 ára, einu afritin þarna inni, og þetta má ekki vera horfið! annars er ég dauður!
veit einhver hvort ég geti lagað þetta, og hvernig þá?
og já btw að þá heyrist alltaf þegar ég kveiki á honum svona hökt í honum, held að það hafi eitthvað með þetta að gera!
