Er búinn að sjá alveg súperdúper DVD/VCR spilara sem mig langar í. Það er Samsung spilari sem að er til í Euronics í Smáralind. Ég veit ekki hvort að Euronics eru að selja “vanilla” útgáfuna en ég myndi halda það. “Vanilla” útgáfan spilar víst bara svæði 2 (Evrópa ef mig misminnir ekki).

Techtronics.com bjóða þennan spilara á lægra verði (en ofan á það kemur svo VSK þannig að það verður það sama) en með því viðbættu að þeir hafa disable-að region locking, RCE og eitthvað meir, einhverjir mjög nettir fítusar sem að þeir hafa sett inn.

Kannast einhver við þessa gaura? Þeir eru með glimrandi dóma á vefnum sínum frá ýmsasta fólki, en það væri gaman að vita hvort að einhver hérna veit meira?<br><br>–
Summum ius summa inuria
Summum ius summa inuria