Þannig er mál með vexti að tölvan mín hefur verið að taka sér góðann tíma í starta sér. Hún er núna kominn upp í 5 mínútur og er þetta talið eftir að maður ýtir á accountinn sem maður vill fara inná.

Sumir hugsa kannski núna:“Hah. Tölvan mín er lágmark 4 mínútur að starta sér og það er bara eðlilegt” og skil ég það vel. En tölvan mín tók sér bara nokkrar sekúndur í starta sér í byrjun og er sá tími núna búinn að margfaldast nokkuð oft.

Veit einhver hvað ég get gert?