Sælir huganotendur!

Ég á við smá vandamál að stríða sem ég vona að þið getið hjálpað mér með.

Þetta lýsir sér þannig að ef ég kveiki á tölvuni virkar hún sæmilega, aðeins hægari en hún á að vera en okay.
Svo þegar ég fer í tölvuleik eða horfi á þátt/bíómynd eða einhvað á netinu þá froznar hún eftir svona 1-10min mjög random.

En skrítni parturinn er að ef ég er með iTunes kveikt þá slöknar ekki á tónlistinni þó ég geti ekki gert neitt. :(

Getur einhver hjálpað mér með þetta, jafnvel gefið mér sæmilegar leiðbenginar hvernig á að leysa þetta?

P.S: Þetta er mjög góð tölva(talva?:P). amd64 4000+, gforce 6800gt, 2gb ram og svo shuttle móðurborð ásamt shuttle kassanum :)