Jæja, eg var í tölvunni þegar allt fraus og ég restartaði tölvunni.
Þá byrjaði eitthvað í tölvunni að pípa, það kviknaði allveg á tölvunni, en hún fór ekkert í gang beint.

Ég kíkti á http://www.amptron.com/html/bios.beepcodes.html

og þar stendur að endalaust af háværum löngum pípum sé ofhitnun í örgjörvanum.

Þetta hefur gerst tvisvar áður, eins.
Fyrra skiptið þurfti ég bara að bíða í þónokkuð langan tíma en í seinna var vifta ónýt og þurfti bara að skipta um hana.

Ég er búinn að tjékka á öllum viftum, ryksuga ryk og allt það en ekkert virðist virka.

Vitiði hvað gæti verið að ?

Bætt við 8. febrúar 2007 - 22:07
Og já, þetta er ekki alvöru accountið mitt, er í tölvu bróður míns.