Er að skipta út, hef átt þessa hluti í rúmt ár. Ég er semsagt að selja ASUS A8N-SLI Deluxe móðurborð, AMD3500 örgjörva og OCZ 4 x 512 Dual Channel Titanium minni 400mhz, þ.e.a.s. 2GB dual minni.


Málið er að ég vill losna við þessa hluta a.s.a.p og get alveg rætt við menn um hvort vilji hafa þetta í turni, með aflgjafa, viftu og þess háttar, ég á alla þá hluti sem auka. Mig vantar alla vega að losna við undangreinda 3 hluti, það má líka alveg ræða verðið því ég setti bara einhverja cirka tölu sem ég hafði tilfinningu fyrir. Ég er að skjóta á 50.000 kall, þetta kemur úr búð á 60 - 70.000 kall.


Þessi samsetning með góðu hljóðkorti gerir alveg þrusufína leikjavél fyrir hvern sem er. ég hef verið að nota WinXP 64bit í rúmt ár og svínvirkar með þessu, ég hef aldrei lent í vandamáli með þessa hluti. (nota bene, BIOS-inn er uppfærður í botn á móbóinu).


Fyrsta árið var ég með Waterchill vökvakælingu í Coolermaster Stacker, var allt að svínvirka! Þannig að ef einhver vill fá að kaupa Waterchill settið þá læt ég það frá mér ódýrt.