Svo er nú mál með vexti að minn er að fara að fá sér DVD drif og langar voðalega mikið að geta horft á það í sjónvarpinu. Málið er að þetta DVD drif verður í fartölvu og það er ekkert TV out á henni. Mig minnir að ég hafi séð voðalega sniðugt gadget einusinni sem leyfði manni að tengja beint úr skjátengi yfir í sjónvarp. Kannast einhver við svoleiðis, og/eða getur bent mér á einhverja heimasíðu. :)