Er í helv…. vandræðum. Vantar að kaupa varahlut á netinu (er erlendis), en veit ekki hvað hann heitir.

Málið er að ég er með fartölvu og tengið á henni sem straumbreytirinn fer í er ónýtt. Sama hvað ég reyni að útskýra þetta fyrir sölumönnum þá vilja þeir allir selja mér straumbreytirinn :)

Straumbreytirinn er með jack (kellingu) á endanum, sem er stungið í jack (kall) á tölvunni.

Er einhver þarna úti með nafnið á hreinu?