Ég er með gamla HP Omnibook XE3 fartölvu. Rafhlaðan er orðin mjög léleg. Tölvan er stillt þannig að þegar rafhlaðan er komin í low þá fer tölvan í hibernate. Vandamálið er að rafhlaðan endist ekki nema í nokkrar sekúndur, og þegar tölvan var færð á milli innstunga fyrir nokkrum dögum kláraðisth hleðslan og tölvan reyndi að fara í hibernate.
Nú er staðan þannig að ekki er hægt að ná henni úr hibernate, er búinn að prófa að taka hana úr sambandi og taka rafhlöðuna úr. Alveg sama hvað gert er, það gerist ekkert.
Nú er spurningin: Er einhver hér sem kannast við vandamálið og getur ráðlagt mér hvað ég get gert?
Ef ekkert er hægt að gera, hvernig fer ég þá að því að bjarga gögnum sem eru á harða disknum?