Nú hef ég fengið nóg af þessu skítafyrirtæki! Ég keypti mér búnað til að áframsenda WiFi bylgjur frá Linksys, og hversu marga klukkutíma var ég að átta mig á þessu man ég ekki. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist með búnað frá Linksys, átti router sem fór rosalega í taugarnar á mér, hvað hann var illa notendavænn og ömurlegur að öllu hugbúnaðarlegu leiti. Ég skal hafa þetta stutt og segja eitt: Vélbúnaðurinn frá Linksys er mjög góður, EN allur hugbúnaður sem vélbúnaðinum fylgir er RUSL!