Góðan og blessaðan daginn.

Ég var um daginn að fikta smá í firmware-inu í dvd-skrifaranum mínum, Matshita UJ-815A, setja nýtt firmware inn á hann. Svo núna þá kemur það að ég er með region 1 í notkun og ég get ekki spilað 2 nema breyta í windowsinu. Reyndar er þetta nokkuð þægilegt því ég get horft á öll region en ég þarf alltaf að breyta því og mér finnst það leiðinlegt.

Er til lausn á þessum allsvakalega litla vanda?