Það kostar 3200kr að láta setja eitt helvítis netkort í tölvu hérna í Vestmannaeyjum svo ég hef engra kosta völ og verða að taka áhættu. Ég verð að setja netkortið sjálfur inn og eiga það á hættu að rústa tölvunni minni. Svo datt mér í hug að snillingarnir hér á vélbúnaði gætu kannski hjálpað mér. Ef þið gætuð hjálpað mér með því að segja mér hvernig ég á að gera þetta og hvað ég þarf að hafa í huga þá myndi ég meta það mikils.