Dóttir mín á COMPAQ Deskpro tölvu með Win.2000 5.00.2195 og okkur langaði til að formata diskinn og setja annað stýrikerfi í hana.
Ég get ómögulega “boot from CD” og kemst ekki inn í BIOS, eftir þeim leiðum sem fróðari menn en ég, hafa bent mér á.
Ég er búinn að reyna Esc F1 F2 F3 F4 og upp í 12, del og Ctrl.
Mestar líkur eru á að nota F10, en það virkar ekki heldur hjá mér.
Er þarna e-r snillingur sem veit um aðra lausn en þessar?