Nú veit ég ekki hvort þið kannist við þetta bragð en þetta er allavega stórsniðugt :)

Ég er eins og flestir orðinn vel þreyttur á suðinu í tölvunum mínum. Sjálfur er ég fátækur námsmaður og hef ekki mikinn pening aflögu til að kaupa mér hljóðlátar viftur eða svona dót sem skrúfar niður hávaðann.
Ég var því mjög glaður þegar ég rakst á hið svokallaða “7 volt trick” á heimasíðu nokkurri um daginn. Núna rétt áðan beitti ég því á serverinn, gamla P1 vél sem suðaði all illilega, og viti menn, þetta bjargaði mér úr suðhelvíti.

Ég nenni nú ekki að vera að lýsa framkvæmdinni hérna í orðum enda nægir ein lítil mynd til að útskýra þetta annars einfalda bragð. Því vísa ég beint á heimasíðuna sem þetta var á, auk þess sem hún inniheldur ýmislegt fleira skemmtilegt fyrir fiktrassa.

http://www.cpemma.co.uk/index.html