Jæja ég er á heimili sem hefur gamla Win98(200mhz) tölvu, fartölvu(WinXPpro,800mhz) og aðra borðtölvu(WinME,600mhz).

Eins og er erum við með Hub sem tengir allar tölvur saman, notum windows file sharing og internet connection sharing frá MS. ADSL mótaldið er í 600mhz WinME tölvunni og fæ ég (fartölvan) samband við internetið þar í gegn.

ADSL tölvan er alltaf að crasha reglulega (Win millenium). Þess vegna er ég að spá í að setja á hana WinXP pro. Þá lendi ég sennilega í vandamáli með ADSL drivera og öllu tengdu því (miðað við hvað það var roslaega!!! mikið vesen að koma ADSLinu í gang fyrst sem var á WinME).´

Ég er líka að spá, eykst hraðinn í fartölvuna ef ég uppfæri WinME, yrði það hægara ef ég sting ADSLinu inn í 200mhz tölvuna ?

Mér gengur líka illa að finna forrit til að mæla hraðann á internetinu og líka hraðann á milli tölvnanna á Laninu hér heima, hefur einhver hugmyndir eða vísbendingar ??

Hvað er best að gera ? (án þess að eyða of miklum pening)

gons