Er einhver hérna sem hefur reynslu af því að nota k!tv við Pinnacle PCTV RAVE sjónvarpskortið?
Málið er að ég var að fá mér þetta kort, setti það upp með driverum og hugbúnaði sem fylgdi með og allt virkar fínt. Síðan setti ég upp hjá mér k!tv,en þegar ég er að keyra upp forritið þá kemur “no tuner” í tékkinu sem kemur í splash myndinni. fór í stillingar og setti þær allar eins og þær eiga að vera, en get ekki fengið kortið til að leita að stöðvum, fæ villuna “error while setting tuner”, þessi villa kemur upp í hvert skipti sem ég ætla að setja auto-tune í gang.

Ég get hins vegar keyrt upp native forritið, stillt á stöð þar, slökkt á því og startað k!tv og þá er sú stöð opin þar.

Einhver hjálp yrði vel þegin.