Ég er að pæla í því að fara kaupa mér skjákort og vantar upplýsingar um hvaða skjákort er gott og á skikkanlegu verði.
Ég er sjálfur með Diamond Viper 550 16mb (nvidia tnt kort) á pIII 450mhz vél og er að ná 70-80 römmum í q3 og með hann tvígaðan út í gegn.

Ég get ekki spilað þessa nýju leiki eins og t.d hitman með þessu korti.

Ég hef hugsað mér að eyða 15000-25000 kalli í skjákort og ætla mér ekki að gera þau mistök að kaupa eitthvað sorp.

Hvaða korti mæliði með?