Í dag kom faðir minn til mín og sagði mér frá þessari nýju tengingu sem hann heyrði um í útvarpinu og væri verið að setja upp. Hún á víst að vera mun hraðari en núverandi tengingar. Aðeins er búið að serja þetta upp í nokkur hverfi í Reykjavík.
Þegar karlinn var búinn að segja mér frá þessu var ég orðinn frekar forvitinn og var að spá hvort þið gætuð sagt mér hvað hann hafi verið að tala um ? Hvaða fyrirtæki er með þetta ? Einhver sem hefði getað heyrt þetta sama og hann…

Promotheus