Veit einhver til þess að hægt sé að fá ADSL módem sem er líka þráðlaus sendir og router eða switch fyrir 1-4 vélar.

Getur einhver mælt með slíkri græju ef hún er þá til og hvar er hægt að fá hana ódýrasta?

Ef þetta er ekki til vantar mig sem ódýrasta lausn. Er með borðvél með innbyggðu ADSL módemi.Er að bæta við laptop sem ég vil hafa þráðlausan. Nenni ekki að leggja símalögn inn í herbergið þar sem borðvélin er svo best er fyrir mig að koma þessu strax í loftið þar sem símainntakið er í íbúðinni og hafa svo netkort í báðum vélum. Hverju mæla menn með hér?