Hæbbs… þetta er svona smá auglýsing sko, ég er nefnilega
í dálitlum vanda. Ég keypti 900 megaherza uppfærslu hjá
tölvulistanum fyrr í ár en týndi svo geisladisknum sem fylgdi
með og er með öllum driverunum fyrir móðurborðið og allt
það, til þess að móðurborðið og harðidiskurinn geti talað
saman (eða hvað það nú er sem þetta gerir). Ég ætlaði að
athuga hvort það væri þarna úti einhvers sál sem aumkaði sig
yfir mér og lánaði mér sinn disk, bara svo ég geti rennt honum
í gegn.

Átt þú nokkuð svona disk sem fylgdi með? Plís sendu mér
línu. Ég er búin að fara niðrí tölvulista til að fá hann lánaðan
en þau segja að allt sé uppselt.