Þetta var á partalistanum, og fannst tilvalið að sem flestir vissu af þessu.



>Sæl öll,


Mig langar að biðja ykkur um aðstoð við að upplýsa vægast sagt
lágkúrulegan glæp.



Þannig er mál með vexti að um klukkan 5 aðfaranótt laugardagsins
sl.(30. nóv) var brotist inn á skrifstofu Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna
og þaðan stolið tölvubúnaði fyrir mörg hundruð þúsund krónur. Þessi
Þjófnaður lamar þá fjáröflunarvertíð sem fram undan er, meðal annars
jólakortasölu. Öryggisverðir komu um 5 mínútum eftir að viðvörunarkerfi fór
í gang
Enn þá voru þjófarnir á bak og burt



Stolið var Bell-fartölvu og stórri Compaq Pentium vél, báðum
nýlegum. Í tölvunum er mikið af gögnum og kemur það sér mjög illa fyrir
starfið
Í kringum fjáröflun til styrkar krabbameinssjúkum börnum ? því um
Þessar mundir stendur aðalfjáröflun félagsins yfir með sölu jólakorta.


Þeir sem geta veitt einhverjar upplýsingar um málið, mannaferðir við
Hlíðarsmára aðfararnótt laugardagsins eru vinsamlegast beðnir um að
Láta lögregluna í Kópavogi vita.



Vinsamlegst áframsendið



Kveðja,



Guðni H.


<br><br>You know, there's a million fine looking women in the world, but they don't all bring you lasagne at work. Most of them just cheat on you.
- Silent Bob (Clerks)