Það virðist vera að Voodoo5 6000 muni aldrei koma út, eða allaveganna ekki frá 3dfx. Um daginn þá tilkynnti 3dfx að þeir hefðu gefið Quantum3D leyfi til að nota tæknina bak við Voodoo5 6000 s.s. 4-way SLI. Quantum3d mun hinsvegar ekki gera svona kort til sölu á almennum markaði heldur verða þau bara seld í vélum frá þeim.

Enn og aftur verður 3dfx að láta í minnipokann fyrir öðrum.
_______________________