Hvað ertu mikill "dellukall" ?   :) Ég var á Netinu eins og svo oft áður og rakst á síðu sem kom mér til að bókstaflega slefa.

Það kom mér til að hugsa til þess að mikið yrði gaman ef eitthvert fyrirtækið og starfsmenn þess, sem við erum búnir að annaðhvort úthrópa sem svikara af hæstu gráðu eða útnefna sem mega góða gæja, í fyrri greinum og víðar, myndi taka sig til og flytja inn massa flotta kassa, mjög svo ólíka þeim stöðluðu sem aðeins eru hér er að finna.
Þá væri gaman ef hægt væri að velja PS-inn í kassann sinn þegar þú kaupir hann (400w kannski :) en hingað til hefi ég aðeins getað keypt staðlaðan kassa og ef ég vildi kraftmeira PS þá skyldi ég kaupa hann líka, aukalega þ.e.
(án efa er til búð hér sem sem gerir þetta en ég veit ekki um hana)

Ég segi fyrir mig að ég væri meira en lítið til í að kaupa og eiga kassa, ólíka “öllum hinum”. Þetta er nú einu sinni TÖLVAN Þ'IN !!!

Menn eru að modda kassana sína en þegar þú hefur kassa sem þessa, þá held ég að það verði óþarft.

Auðvitað er þetta alltaf spurning um peninga en það eru nú einu sinni menn að kaupa td. skjái á 85-130 þúsund (og dýrari) og ég er kannski svona vitlaus en ég held að allavega að EINHVERJIR hefðu áhuga á að brjóta aðeins upp hið venjulega. (Ég veit um einn :)

Ef einhver hefði áhuga á að skoða það sem málið snýst um þá fylgir slóðin hér á eftir.

Gaman væri að heyra álit manna á efninu.

Beztu kveðjur

Xits

Slóðin:
http://store.yahoo.com/computerheaven/cuscomcas.html