DetonatorXP kominn frá NVIDIA Kominn er nýr detonator frá NVIDIA og bara svona að benda fólki á þetta, þetta gjörbreytir grafíkinni hjá flestum sem að eru með kort sem að detonatorinn styður.
Ég er með GF2MX64MB kort og 15“skjá sem að meikar 1280*1024 núna í win2k en áður en ég setti þetta upp þá gat ég aðeins haft 1152*864 og svo hef ég einnig heyrt að þetta gefi eikkvað um 20 auka FPS í UNREAL TOURNAMENT(sem að er auðvitað besti leikurinn =) þeir sem að hafa áhuga á að kynna sér hann meira geta kíkt á hugi.is/unreal, en það er annað mál.
Ég vildi bara vekja athygli á þessu þar sem að þetta gjörbreytir eila öllu til hins betra :)))

Svo ef að eikkver er með ódýran 17-19” skjá þá skal ég skoða það, þessi 15" er orðinn soldið lúinn eftir margra ára þjónustu :)


http://www.nvidia.com/us/ie/view.htm
(fara í Download drivers efst í vinstra horninu)
-