Það sem kemur framm hérna eru skoðanir mínar og endurspegla ekki skoðanir fyrirtækja sem nefnd eru hér að neðan

Hérna á áhugamálinu Vélbúnaður hefur MJÖG mikið borið á því að fólk er að hrósa eða kvarta yfir þjónustu tölvuverslana. Ég hef lesið soldið af þessu og það sem ég hef lesið eruð þið sem eruð að skrifa þessar greinar yfir leitt að dæma verslanir og tölvuframleiðendur fyrir eitthvað eitt dæmi sem þið hafið lennt í.

Sko í fyrstalagi vil ég hafa það á hreinu að ég er mjög tengdur Aco Tæknival og þar af leiðandi BT, ég er búinn að vera meira og minna inní þessu fyrirtæki síðan ég fæddist 1985, þannig að ég gæti orðið soldið hlutdrægur (sorry) og get því miður lítið af því gert.En ég þegar ég les þessar greinar hérna tek ég eftir því að fólk er að dæma fyrirtæki eins og BT og Tölvulistann alveg grjóthörðum dómum og segja að þeir séu hálvitar og vita ekki neitt, auðvita eru ekki allir sem vinna hjá búð eins og BT algjörir tölvu snillingar eins og margir ykkur hérna sem stunda þetta áhugamál en þeir eru þó að reina. Síðan er eitt sem mér fynnst afskaplega leiðinlegt að sjá er að fólk leifir sér að segja hluti eins og “ekki kaupa compaq, algjört rusl” útaf því að það fékk þessa hræðilegu Presario vél í fermingar gjöf en ég fékk sjálfur svona vél í fermingargjöf og ég er ekkert hræddu við að segja að ég og pabbi vorum rosalega hissa og mjög svekti þegar við settum netkort í vélina og hún hrundi. Compaq framleiða mjög góðar vélar eins og EP vélarnar sem eru snilld, ótrúlega duglegar vinnustöðvar.

Það sem ég er að reyna að gubba uppúr mér er það að það er mjög gott að gagnrína og koma skoðunum sínum á framfæri, en það að dæma fyrirtæki og tölvuframleiðendur af einu einstöku dæmi er alveg fáránlegt

p.s.
Compaq og BT notaði ég sem dæmi, því ég þekki vel til BT. Ég get ekkert dæmt eða sagt neitt um önnur fyrirtæki því ég þekki lítið sem ekkert til þeirra. Auðvita hef ég heirt fullt af sögum en maður tekur þeim ekki trúanlegum nema þær séu frá fyrstu hendi

p.s.s.
ég vil gjarnan nota tækifærið og nefna það að BT hefur í raun bætt þjónustu sína til muna og Fujitsu eru að gera mjög fína hluti =)