Í fréttatilkynningu frá skjákortaframleiðandanum <a href="http://www.3dfx.com“>3dfx</a> kemur fram að þeir munu hætta rekstri og selja megnið af eigum sínum til samkeppnisaðilans <a href=”http://www.nvidia.com">Nvidia</a>

Nvidia mun greiða um 70 miljónir bandaríkjadala og 1 miljón hlutabréfa í Nvidia fyrir meðal annars: Einkaleyfi, einkaleyfi í umsóknum, vörumerki, vöruheiti og kubbalager í eigu 3dfx. Einnig ætla þeir að falla frá lögsóknum á hendur hvors annars vegna meintra einkaleyfabrota.

Ég vil þá nýta tækifærið og biðja um mínútu þögn fyrir fyrrum konungi þrívíddarkortana.
JReykdal