Þetta er hin nýja Mazda 6 sem mun koma í staðinn fyrir Mazda 626. Mazda er í óða önn við að gera ímynd sína meira spennandi og óneitanlega lítur þessi bíll út fyrir að vera meira spennandi en 626.
Bell 407, sennilega arftaki Bell206L LongRanger enda lítur hún mjög svipað út nema hvað að hún er fjögurra blaða. Aðalþyrillinn var þróaður fyrir Kiowa herþyrluna.
Einn athyglisverðasti búnaðurinn í Nissan Sunny GTi-R Jap. Spec var án efa regnhlíf sem mátti draga út úr sérstöku hólfi í hurðinni farþegamegin. Regnhlífin var ekki í UK Spec útgáfunni hvernig sem stóð nú á því.
Nissan Sunny 2000 GTi-R. Tjúnaður af Norris Design, með nýjum intercooler sem glittir í fyrir aftan framstuðarann, 17" MOMO Arrows og svo með mjög frambærilegum hliðarsvuntum og framstuðara frá Kudos Evolution.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..