Tóm þessa mynd út af www.nurburgring.de í myndaseríu af bílum að taka “slæd” í gegnum beygjur í rigningu á nurburgring nordscleife.
Þessa ákaflega flottu mynd af Lamborghini Espada S1 fann ég á www.lamborghiniregistry.com sem er ábyggilega einn besti Lamborghini vefurinn á netinu. Það má segja að bíllinn sé þarna í sinu rétta umhverfi - á herragarði - enda stundum kallaður Rolls Royce að hætti Lamborghini. Þrátt fyrir að vera 2 dyra sportbíll með V12 vél hafði Espada alvöru aftursæti og farangursrými, ábyggilega tilvalinn bíll til að skjótast á milli Evrópulanda á.
í kringum 1970 var Porsche með þennan hugmyndabíl í smíðum (kallaðist Porsche Longlife). Þeir vildu búa til almenningsbíl (Fólksvagn) með endingu og gæði sem forgangsatriði. Markmiðið var að láta bíla endast betur, semsagt maður kaupir sér bíl og á hann svo bara í 20-30 ár svipað og Bristol eigendur gera.
Jensen Interceptor, breskur Grand Tourer eins og þeir verða mest Grand, með ítalskt hannaðri yfirbyggingu og big-block Chrysler V8 undir húddinu. Mynd tekin af http://www.canadiandriver.com/articles/bv/jensen_interceptor.htm þar sem hægt er að lesa grein um sögu þessara bíla.
Ég varð bara að pósta mynd af þessum Ferrari þar sem hann er fullkominn fyrir minn smekk. Ferrari 365 GTC/4.