Hér getur að líta Ferrari Grúppu 4 Rallýbíl, en margir telja að Ferrari F40 hafi einmitt verið hannaður til notkunar í Grúppu 4 auk kappaksturs en því miður varð ekki af því þar sem reglum var breytt.
Ég er mjög upptekinn núna að velta fyrir mér þessum snilldar VR “narrow-angle” V-vélum VW. Get ekki sagt annað en ég hrífist af þessum hugmyndum. Á myndinni er vélarblokk W12 vélar, nokkuð sem fékk kjálkann á mér til að nálgast bringuna aðeins. Nú á ég bara eftir að fá að vita meira um V5 vélina stórmerkilegu sem enginn virðist vilja segja neitt um á vefnum. Einhverjir snillingar hér sem luma á vísdómi um hana? Sendið mér skilaboð, eða betra, sendið inn pistil!
I see you baby, shaking that… twin tailpipe!