Afsakið, sendi þessa mynd inn til að prufa/athuga sýna smávegis :) (250x166 pixels, 12 KB)Fallegur mynd af Lotus Elise annars :)
Svona mun fyrsti bíllinn hannaður undir merkjum Bentley eftir yfirtöku Volkswagen/Audi líta út. Útlitið veldur engum vonbrigðum og það gera afköstin ekki heldur. Spretturinn upp í hundrað um eða undir 5 sekúndum fyrir bíl sem er yfir tveimur tonnum er mjög við hæfi í nútíma Bentley en það er spurning hvað Bentley aðdáendum finnst um fjórhjóladrif og hálfsjálfvirkan gírkassa með skiptingarflipum bakvið stýri. 6 lítra W12 með tveimur túrbínum, yfir 500hö og ógnvænlegu togi eins og sést á neðri myndinni prýðir bílinn einnig og veldur væntanlega minni deilum. Verðið yrði væntanlega í átta stafa tölum á Íslandi og reyndar örugglega allsstaðar í heiminum, reiknaði í íslenskum spírum þ.e.
Var einhver að minnast á Bristol? Þetta er þeirra nýjasti, Blenheim S. 5,9l Chrysler V8 og álboddí á sjálfstæðri grind, alvöru breskur fleki. Ekki beinlínis bíll sem vekur eftirtekt enda einmitt það sem meðal Bristol kaupandi sækist eftir, þeir vilja smekklegan, vandaðan bíl sem er sérstakur án þess að flagga verðinu. “Íslandsvinurinn” Damon Albarn mun hafa fengið sér einn Blenheim og þar með gert Bristol að hluta af “Cool Brittania” Tony Blair. Verulega sérstakir bílar smíðair af sérvitrum mönnum sem hafa ekki heyrt um markaðsrannsóknir. Ég held ég myndi eyða peningunum mínum í Bentley Continental T… :)