Gleymt lykilorð
Nýskráning
Vélar

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.096 stig
Aiwa Aiwa 1.770 stig
KITT KITT 1.650 stig
Dashinn Dashinn 1.480 stig
JoeyThunder JoeyThunder 1.296 stig
wiss wiss 1.264 stig
sputnik sputnik 1.244 stig

Úti að leika. (43 álit)

Úti að leika. Ég að leika mér á 4hjóli vin míns.

Þetta rándýr er á keðjum og svínvirkar í hálku.

Antonio.

Nýji C-class í árekstrarprófi (14 álit)

Nýji C-class í árekstrarprófi Þessi mynd sýnir nýja C-classinn í árekstrarprófunum á hlið. Nokkuð öruggt frá mér séð.

Sést vel hvernig loftpúðar verja höfuð bæði ökumanns og farþega aftur í.

Virðist vera sæmilegt högg á einhvejrum hraða.

Valentino Rossi (7 álit)

Valentino Rossi Í tilefni af því að MotoGP byrjar í sýningu á skjá einum í mars þá er fínt að setja inn eina mynd af Doktorinum sjálfum

Boeing 767 (6 álit)

Boeing 767 Þetta er flott mynd sem ég fann á airliners.net. Vélin er að taka á loft á Des Moines - International flugvellinum í Iowa fylki í USA. Það er notaður svokallaður long exposure time til að ná þessu. Þetta er snilld.

Williams FW29 (5 álit)

Williams FW29 Williams-liðið frumsýndi 2007 keppnisbíl sinn í Crove í Oxfordskíri á Bretlandi í dag. Bíllinn ber heitir FW29 og fylgja honum miklar væntingar eftir vægast sagt dapurt gengi Williams liðsins á liðnu ári.

Williams hefur skipt um vélarframleiðanda, og er nú kominn með Toyota vél.

Ökumenn liðsins í ár verða ungliðinn Nico Rosberg og reynsluboltinn Alexander Würz, sem snýr nú aftur úr “útlegðinni”. Würz hóf Formúlu 1 feril sinn sem staðgengill landa síns, Gerhard Berger, og í sinni 3. keppni skoraði hann 3. sæti. 1998 var hann síðan ráðinn aðalökumaður liðsins ásamt Fisichella, en árangurinn lét á sér standa, og þegar að Würz tókst ekki að finna sér keppnissæti árið 2001 gekk hann til liðs við McLaren sem tilraunaökuþór, og gegndi því hlutverki til 2005. Árið 2005 keppi hann eina keppni í staðinn fyrir hinn meidda JP. Montoya. Á liðnu ári gekk Würz til liðs við Williams sem 3. ökumaður, og var verðlaunaður með sæti aðalökumanns í ár.

Annars er það að frétta af seinustu frumsýningunum, að allar dagsetningar eru nokkurn veginn komnar á hreint, og verða sem segir:

Spyker liðið mun sýna sinn bíl nk. mánudag (5. feb.) á Silverstone brautinni.
Scuderia Toro Rosso hefur ákveðið að sýna sinn bíl degi síðar, eða þriðjudaginn (6. feb.). Staðsetning er enn ókunn.
Og Super Aguri, sem frestaði frumsýningu síns bíls eftir að hafa fallið á árekstrarprófi, hefur ákveðið að sýna sinn bíl í Tókýó í Japan þann mánudaginn 12. mars, eða aðeins 6 dögum áður en grænu ljósin munu kvikna á Melbourne brautinni.



Mynd:
* Stats F1, http://www.statsf1.com/cars/photo/102/1174.jpg.

Heimildir:
* Wikipedia.org. 2007 Formula One Season. Slóð: http://en.wikipedia.org/wiki/2007_Formula_One_Season.
* Wikipedia.org. Alexander Wurz. Slóð: http://en.wikipedia.org/wiki/Alexander_Wurz.

Bíllinn minn (56 álit)

Bíllinn minn Mercedes Benz E220.

Myndin var tekin í Garðabæ með útsýn yfir Hafnarfjörð og bláfjöll í bakgrunn. Myndin var tekin þann 3. desember sl.

Audi TT-R (7 álit)

Audi TT-R Suddalegur audi Vááá mig langar að vera ríkur og geta keypt mér hvaða bíl sem er :( heimurinn er á móti mér núna

Auglýsing á /motorhjol (10 álit)

Auglýsing á /motorhjol Ég bjó til smá mynd hérna sem auglýsingu fyrir áhugamálið.

Hvernig lýst mönnum á?

Gamla myndin - Ráslínan fyrir argentínska kappaksturinn 1955 (3 álit)

Gamla myndin - Ráslínan fyrir argentínska kappaksturinn 1955 Já, eflaust nokkuð margir hissa á þessarri mynd, en þetta fyrirkomulag (margir á sömu ráslínu) var ekki svo óalgengt lengi vel í Formúlunni.

Myndin sýnir rásröðina eins og hún var fyrir argentínska kappaksturinn 1955. Byggðist ráslínan upp þannig að 4 voru í 1. röð, 3 í 2. röð, 4 í 3. röð, o.s.frv. Sá sem var á ráspól (í þessu tilfelli) var sá sem hóf keppni lengst til hægri í röðinni (Juan Froilan Gonzalez, Ferrari, í þessu tilfelli). Við hliðina á honum kom síðan sá sem varð 2. í tímatöku, o.frv.

Myndin er fengin af vefsíðunni Stats F1, nánar tiltekið af slóðinni http://www.statsf1.com/photos/gp/1955/42.jpg.

Ef einhverjum langar að forvitnast um röðina á ráslínuna fyrir þennan kappakstur, þá bendi ég á slóðina http://www.statsf1.com/default.asp?From=/resultat/gp/grille.asp?idgp=42%26LG=2.

Ég hvet alla eindregið til að kynna sér síðuna StatsF1.com, frábær síða að mínu mati.

Tsunami/Kiss of Death (10 álit)

Tsunami/Kiss of Death maður væri til í að geta þetta
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok