Gleymt lykilorð
Nýskráning
Vélar

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.096 stig
Aiwa Aiwa 1.770 stig
KITT KITT 1.650 stig
Dashinn Dashinn 1.480 stig
JoeyThunder JoeyThunder 1.296 stig
wiss wiss 1.264 stig
sputnik sputnik 1.244 stig

ktm sx125 2006 (11 álit)

ktm sx125 2006 þessi hjól eru svo svöööl langar ekkert smá í svona :D

Pajero (9 álit)

Pajero Ugh, var bara kominn með leið á hinni myndinni.
Þetta er semsagt Pajero-inn hjá fjölskyldunni.

Hann virkar… það dugar mér.

Supercar (9 álit)

Supercar já fann þennan bíl á Google veit ekkert um hann. nema hann er bara flottur.

Street Magic (8 álit)

Street Magic Street Magic er snildar hjól miklu flottari en vespur og svona!

TF-FIN (0 álit)

TF-FIN Stæði 7 í Kef,tekið í des 2006 um kl 15 og sólin lágt á lofti

Lada ! (17 álit)

Lada ! Eihver búinn aðeins að gleyma að þetta er LADA

TF-FIP (0 álit)

TF-FIP Þarna er þetta betra þótt menn rekast með höfuðið upp í í traffík stressinu.
Á TF-FIB 767-300 Icelandir er þetta einnþá betra.

rider (15 álit)

rider motocross

Gamla myndin - Villeneuve (3 álit)

Gamla myndin - Villeneuve Myndin sýnir fjölskyldu Gilles Villeneuve fagna fyrsta sigri Gilles, sem kom á heimavelli hans í kanadíska kappakstrinum haustið 1978.

Frá vinstri: Jacques eldri (bróðir Gilles), Joann (eiginkona Gilles), Jacques yngri (sonur Gilles og heimsmeistari í Formúlu 1 1997), Gilles sjálfur, og síðan foreldrar Gilles.

Auk Gilles hafa bróðir hans annars vegar og sonur hans hins vegar (sem báðir bera nafnið Jacques Villeneuve) tekið þátt í Formúlu 1, þar sem líklega hefur farið meira fyrir þátttöku þess yngri.

Jacques Villeneuve eldri (í Formúlu heiminum oft kallaður Jacquo, Uncle Jacques eða L’oncle Jacques). Bróðir Gilles. Kappakstursmaður eins og Gilles. Can-Am meistari 1983. Reyndi þátttöku í 3 keppnum í Formúlu 1, 2var með Arrows í lokakeppnum ársins 1981 og 1 sinni með RAM liðinu á miðju sumri 1983, en náði aldrei nægilega góðum tíma til að hefja keppni.

Jacques Villeneuve yngri er okkur flestum kunnugur. Þrátt fyrir að hafa upplifað að missa föður sinn í kappakstursslysi árið 1982, þá aðeins 11 ára, þá var hann staðráðinn að feta í fótspor hans. Hann keppti 1989-91 í ítölsku Formúla 3, 1992 í japönsku Formúla 3, North American Toyota Atlantic árið 1993, ChampCar 1994, CART 1995 (meistari þar og einnig í Indy 500). Hóf þátttöku í Formúla 1 með Williams liðinu árið 1996 og náði ráspól í sinni fyrstu keppni. Vann 4 keppnir á fyrsta tímabili sínu og endaði í 2. sæti í stigakeppni ökumanna. Varð heimsmeistari í Formúlu 1 með Williams árið 1997 með 81 stig, 7 sigra og 10 ráspóla. En þá var sigurferli Villeneuve lokið í bili. Átti erfitt tímabil með Williams 1998, yfirgaf liðið og gekk til liðs við BAR frá 1999 – 2003, en þeir áttu mjög brösótt gengi. Keppti ekki mestallt 2004 tímabilið, en hljóp þá í skarðið fyrir hinn brottrekna Jarno Trulli hjá Renault. Fékk fast sæti hjá Sauber liðinu 2005, gerði þó engar rósir, og færðist síðan með yfir til BMW 2006, en var látinn fara um mitt keppnistímabilið. Ekkert hefur heyrst af því hvort hann sé hættur þátttöku eður ei.

Þrátt fyrir stóra titla Jacques yngri, þá hefur hann ekki enn náð að hagga við goðsögn föður síns. Aggressívur og ákveðinn stíll Gilles Villeneuve verður ávallt í minnum hafður. Persónutöfrar hans lokkuðu að sér marga aðdáendur þó svo honum hafi ekki alltaf gengið sem best sem ökumanni, þar sem Ferrari liðið átti nokkuð mörg slæm augnablik á þessum árum. 2. sæti Gilles Villeneuve árið 1979 verður þó að teljast nokkuð viðunandi árangur. 6 sigrar og nánast allir fræknir. Kappakstur aldarinnar við Réne Arnoux í franska kappakstrinum 1979 gleymist aldrei þeim sem sáu hann með berum augum. Með smá heppni hefði Gilles hæglega getað orðið heimsmeistari. Hóf þátttöku sína í Formúlu 1 með McLaren liðinu í 1 keppni á miðju árinu 1977. Gekk síðan til liðs við Ferrari í árslok sama ár. Keyrði með liðinu til dauðadags, í maí 1982. 6 sigrar, 14 sinnum á verðlaunapall, 2var á ráspól og 8 sinnum hraðasti hringur.

Mynd:
http://www.gilles.villeneuve.com/2006/img/Biographie/1978.JPG. Musée Gilles Villeneuve.

Heimildir:
Gilles Villeneuve – Wikipedia. http://en.wikipedia.org/wiki/Gilles_Villeneuve.
Jacques Villeneuve (elder) – Wikipedia. http://en.wikipedia.org/wiki/Jacques_Villeneuve_%28elder%29.
Jacques Villeneuve – Wikipedia. http://en.wikipedia.org/wiki/Jacques_Villeneuve.

MD -82 (2 álit)

MD -82 Er stundum ægilega erfitt fyrir caterings menn að þjónusta þessa vél.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok